Songtexte.com Drucklogo

Með griðungum Songtext
von Skálmöld

Með griðungum Songtext

Stærst er þetta stríð af öllum,
Standa þeir frá sjó að fjöllum.
Saman völdum sigraköllum,
Sundruð öll sem eitt við
Föllum.

Lýkur stríði, lokast hringur,
Lítill fugl með trega syngur.
Tíminn niður stafnum stingur,
Stendur vörðinn ferfættlingur.

Fugl í norðri.
Dreki í austri.
Jötunn í suðri.
Griðungur í vestri.

Fjórða sinnið og fullreynt loks,
Færðist lokastyrjöldin frá
Frá heiði til vogs.
Báru hvor aðra á banaspjót,
Báðar fylkingar, dýrt var
það blót.


Sótt var af hafi og sótt var af
Fjöllum,
Sótt var úr lofti úr áttum
öllum.
Í húfi var landið og heiður
þjóðar,
Hópuðust kringum okkur
Vættir góðar.

Griðungur í sjónum syndir,
Sækja á hann ljótar myndir.
Rífa klær og tæta tennur,
Týnast líf er holdið brennur.
Dugar meðan dagar líða,
Dreki, fugl og jötunn bíða.
Látrabjörgin lemja öldur,
Laskað sverð og brotinn
Skjöldur.

Þórunn barðist uns þrótturinn
Hvarf,
þarna hún kláraði ævistarf.
Studdu við bak hennar
Staðfastir vættir,
Svo standa á frjálsri grundu
þú mættir.


Ég bið að þú hafir í brjósti þér
Myndir,
Hún bjargaði okkur og afmáði
Syndir.
Gleymdu því ekki hvað gerðist,
því sprundið
Er glatað og hvergi í ljóðstafi
Bundið.

Griðungur og gömul kona
Gæta strandar, lífs og vona.
Bogastrengur bítur fingur,
Blóðið fossar, örin stingur.

Barðist Þórunn síðsta sinnið,
Sigur grófst í þjóðarminnið.
Herkvaðningin herðir trúna.
Hringnum verður lokað núna.

Sveitin þagnar, sverðin liggja
Ber.
Svefninn langi bíður eftir þér.
Klakabönd og kynjamyndir,
Kaldur vindur hvín.
Myrkrið dansar, máninn á
þig skín.

Vættir gráta, vetur færist nær.
Vindur kólnar meðan syrgja
þær.
Frystir allt og fjallið litast
Fannhvítt eins og lín.
Myndast skuggar, maninn á
þig skín.

Þórunn Auðna, þakkarskuldin
Er
þeirra sem að lifa, sorgin sker.
Heljarköld í húminu er hinsta
Stundin þín.
Meðan deyrðu, máninn á
þig skín.

Songtext kommentieren

Log dich ein um einen Eintrag zu schreiben.
Schreibe den ersten Kommentar!

Beliebte Songtexte
von Skálmöld

Fans

»Með griðungum« gefällt bisher niemandem.