Songtexte.com Drucklogo

Lengi skal manninn reyna Songtext
von Megas

Lengi skal manninn reyna Songtext

Margt hugar þíns fóstur svo firna ljótt
þú felur, því illu skal leyna.
En mundu að lífið er létta sótt.
Lengi skal manninn,
Lengi skal manninn reyna.
Þó fátt eitt þú megnir og flest sé tál
Og frækorn þín hrjóti um steina,
þá mundu að lífið er leyndar mál.
Lengi skal manninn,
Lengi skal manninn reyna.
Ef tregarðu′ að kristur þitt traust og hald
í tötrum var þræddur á fleina
Þá mundu að lífið er lausnargjald.
Lengi skal manninn,
Lengi skal manninn reyna
Þó besefinn virðist þér brunnið gjall
Sem brotnar er neglirðu hreina.
Þá manstu að lífið er lykkju fall.
Lengi skal manninn,
Lengi skal manninn reyna.
Ef bagar þig hugsun um börn og þras,
Og botna sem hönd þín má skeina.
Þá mundu að lífið er lamba gras.
Lengi skal manninn,
Lengi skal manninn reyna.
Ef hjúskapinn eitrar þinn hrái stíll
Við að hnýta' uppí bandvana sveina.
Þá manstu að lífið er leigu bíll.
Lengi skal manninn,
Lengi skal manninn reyna.
Ef sundlar þig illa þá sýra og bús
í sjöunda himin þér beina.
Þá mundu að lífið er lyftu hús.
Lengi skal manninn,
Lengi skal manninn reyna

Songtext kommentieren

Log dich ein um einen Eintrag zu schreiben.
Schreibe den ersten Kommentar!

Ähnliche Artists

Fans

»Lengi skal manninn reyna« gefällt bisher niemandem.