Songtexte.com Drucklogo

Eilífi drottinn holds Songtext
von ZAKAZ

Eilífi drottinn holds Songtext

Eitthvað sem þú sagðir mér
Þegar ég var of ungur til að skilja
Heyrði allt sem ég vildi
Og hugsaði með mér
Ég mun aldrei gera
Sömu mistökin

En hér er ég
Með troðfullar hendur
Af þrá og eftirsjá
Ég er hér enn
Þótt margstunginn í bakið
Og alblóðugur


Berskjaldaður
Ég horfi fram á við
Glorhungraður
Ég skil ekkert eftir
Óblygðaður
Ég geri það sem ég vil

Ævafornar rústir fortíðar
Grafa sig upp og endurvekja
Minningar um týnda tíma
Tíminn bregst og endurtekur sig
Stoðir veruleikans svigna
Af svikulum gjörðum þínum

Tómarúm kulda og myrkurs
Veittu mér þinn styrk
Eilífa gyðja ljóss
Tímarúm hið dulda angurs
Hneigðu þig og krjúptu
Eilífi Drottinn Holds

Songtext kommentieren

Log dich ein um einen Eintrag zu schreiben.
Schreibe den ersten Kommentar!

Fans

»Eilífi drottinn holds« gefällt bisher niemandem.