Himnasending Songtext
von Nýdönsk
Himnasending Songtext
Í seilingarfjarlægð
þú munt sjá oss.
Er óræð sýn,
munt heyra frá oss.
Holdtekin huglægð,
munt aldrei gleyma oss
er komin til mín.
Fimmfaldur geisli leiðir mig.
Í ómælisvíddir,
þú kemur með oss
inn á önnur svið.
Munt læra af oss
göfugar listir.
Munt svífa með oss
inn um óþekkt svið.
Fimmfaldur geisli blindar mig.
Af himni sent lyftir mér hærra.
Af himni sent
verður stærra og stærra.
Af himni sent
nóg væri það hálfa.
Af himni sent
lætur jörðina skjálfa.
Í seilingarfjarlægð
þú munt sjá oss.
Er óræð sýn,
munt heyra frá oss.
Holdtekin huglægð,
munt aldrei gleyma oss
er komin til mín.
Fimmfaldur geisli blindar mig.
Himnasending!
þú munt sjá oss.
Er óræð sýn,
munt heyra frá oss.
Holdtekin huglægð,
munt aldrei gleyma oss
er komin til mín.
Fimmfaldur geisli leiðir mig.
Í ómælisvíddir,
þú kemur með oss
inn á önnur svið.
Munt læra af oss
göfugar listir.
Munt svífa með oss
inn um óþekkt svið.
Fimmfaldur geisli blindar mig.
Af himni sent lyftir mér hærra.
Af himni sent
verður stærra og stærra.
Af himni sent
nóg væri það hálfa.
Af himni sent
lætur jörðina skjálfa.
Í seilingarfjarlægð
þú munt sjá oss.
Er óræð sýn,
munt heyra frá oss.
Holdtekin huglægð,
munt aldrei gleyma oss
er komin til mín.
Fimmfaldur geisli blindar mig.
Himnasending!
Writer(s): Daniel Agust Haraldsson, Bjoern J Fridbjoernsson Lyrics powered by www.musixmatch.com

