Songtexte.com Drucklogo

Björg Songtext
von Megas

Björg Songtext

Sitjandi krákur þær svelta
Segja þeir sem vita gerst
Og þeir fullyrða líka feimnislaust
Að þær sem fljúgi þrífist best
Og það er augljóst segja þeir
Og það ætti hver maður að sjá

Ef maður ber sig eftir björginni
Ef maður ber sig eftir björginni
Ef maður ber sig eftir björginni
Þá bætir alvaldið því við sem vantar upp á

Og ef þú biður ekki um neitt þá færðu fátt eitt
Og þú finnur ekkert nema með leit
Og manni eru aldrei bjargirnar bannaðar
Maður bankar á dyrnar og það veit
Hvert barn að dyrnar þær opnast einungis þá


Ef maður ber sig eftir björginni
Ef maður ber sig eftir björginni
Ef maður ber sig eftir björginni
Þá bætir alvaldið því við sem vantar upp á

Ef maður skyldi nú verða skotinn
Það skeður oft bara sisona
Þá dugir ekki að hanga með hendur í skauti
Niður í Hafnarstræti og vona
Það eru aðeins þeir sem róa til fiskjar sem fá

Ef maður ber sig eftir björginni
Ef maður ber sig eftir björginni
Ef maður ber sig eftir björginni
Þá bætir alvaldið því við sem vantar upp á

Kannski ertu úti í kuldanum
Með karma af verstu gerð
En ef þú ert næs þá nýtist það þér
Í næsta lífi og þú sérð
Það er allavega praktískt að pæla í því og sjá

Ef maður ber sig eftir björginni
Ef maður ber sig eftir björginni
Ef maður ber sig eftir björginni
Þá bætir alvaldið því við sem vantar upp á

Songtext kommentieren

Log dich ein um einen Eintrag zu schreiben.
Schreibe den ersten Kommentar!

Fans

»Björg« gefällt bisher niemandem.