Songtexte.com Drucklogo

Gleðileg blóm Songtext
von Lay Low

Gleðileg blóm Songtext

Elsku mamma, ég á þér að þakka
Að nú get ég ræktað minn garð
Þú kenndir mér margt, og nú segi ég satt
Því ég sé þann afrakstur nú

Hjartasár og tárin vökva
Með hlýju, oft erfitt er
En með tíð og tíma og reynsluna mína
Þá get ég þetta, með þér

Og sjáðu blómin sem vaxa nú
Og teygja sig móti þér
Gul og rauð og fjólublá
Allir litir, eins og lífið er


Ég lifi og læri, nýti hvert tækifæri
Til að eflast og komast af
En þegar deginum hallar og kvöldið það kallar
Þá á ég minn samastað

Og sérðu nú blómin sem vaxa hér?
Eins og friðurinn innra með mér
Græn og hvít og lillablá
Allir litir, eins og lífið er

Mér finnst gott að dvelja í garðinum mínum
Og verð hér eins lengi og ég get
Mundu að þú ert alltaf velkomin líka
Fyrstu fræin, ég fékk ég frá þér

Og hér eru blómin sem vaxa nú
Ilmurinn leikur sér
Appelsínugul og blá
Allir litir, eins og lífið er


Og sjáðu blómin sem vaxa nú
Og teygja sig móti þér
Gul og rauð og fjólublá
Allir litir, eins og lífið er

Songtext kommentieren

Log dich ein um einen Eintrag zu schreiben.
Schreibe den ersten Kommentar!

Beliebte Songtexte
von Lay Low

Quiz
Welche Band singt das Lied „Das Beste“?

Fans

»Gleðileg blóm« gefällt bisher niemandem.