Songtexte.com Drucklogo

Stórir strákar fá raflost Songtext
von Egó

Stórir strákar fá raflost Songtext

Þeir hringdu í morgun
Sögðu að Lilla væri orðin óð.
Að hún biti fólk í hálsinn
Drykki úr þeim allt blóð.
Hún hafði sagt hún gæti ekki dottið
Hún hefði engan stað að detta á.
Hún sagðist breytast í leðurblöku
Að hún flygi um loftin blá.

Læknirinn var miðaldra
Augun í honum voru grá.
Hann djönkaði sig með morfíni
Sagðist hafa unnið hér í fimmtán ár.
Þá órólegu geymdu á deild
Sem var sérhönnuð fyrir þá.
Það átti að setja Lillu í raflost
Hann bauð mér að horfa á.


Stórir strákar fá raflost...

Gangastúlkurnar hvæstu
Og sýndu í sér tennurnar.
Þær skipuðu mér að fara í rúmið
Sögðu: tími komin á pillurnar.
Ég sagði þeim að ég væri gestur
Að ég væri á leiðinni heim.
Þær skelltu mér með látum í gólfið
Sögðu svo: þú ert einn af þeim.

Á kvöldin kemur læknirinn
Segist vera vinur minn.
Segir: þú verður að vera rólegur
þú æsir upp öll hin.
Segir að ég sé í tveggja ára meðferð
Hann býður mig velkominn.
Segir að á morgun fái ég raflost
Svo að ég verði eins og öll hin!


Stórir strákar fá raflost...

Songtext kommentieren

Log dich ein um einen Eintrag zu schreiben.
Schreibe den ersten Kommentar!

Beliebte Songtexte
von Egó

Quiz
Welche Band singt das Lied „Das Beste“?

Fans

»Stórir strákar fá raflost« gefällt bisher niemandem.