Songtexte.com Drucklogo

Mescalin Songtext
von Egó

Mescalin Songtext

Jafnvel þótt himininn dragi gluggatjöld sín frá
Liggur dáleiðandi þokan glugga þínum á.
Himininn brotnar í ljóðum, nakið undur.
Kristaldýr í garðinum molnar í sundur.

Hálfluktum augum starði ég inn
Rafmagnað ljósið strauk mína kinn.
Hvíslandi þögnin reis úr dvala í gær
Bergmál vorsins í garðinum hennar grær.


Á heitum kvöldum hún kallar mig sinn vin
Með augu eins og demanta, sem lýsa upp himininn.
Hún dansar fram á nætur í tunglsljósinu tryllt
Gulli roðið hár hennar þyrlast úfið, villt.

Garðinn hennar vöktuðu sex japanskir vígamenn
Sem aldrei fóru af verðinum, nema einn og einn í senn.
Ef þú vilt hana gleðja skaltu senda á morgun blóm
Hún hefur stærra hjarta, dýpri augu en páfinn í Róm.

Jafnvel þótt himininn dragi gluggatjöld sín frá,
Mun dáleiðandi þokan liggja glugga þínum á.
Augu þín sljóvga líkt og þú rýnir í svartan hyl
Milli þín og drauma hennar liggur fingurbreytt bil.

Songtext kommentieren

Log dich ein um einen Eintrag zu schreiben.
Schreibe den ersten Kommentar!

Beliebte Songtexte
von Egó

Quiz
Wer singt das Lied „Haus am See“?

Fans

»Mescalin« gefällt bisher niemandem.