Þögn Songtext
von Vetur
Þögn Songtext
Lauflaus tré sveiflast til og frá
Beinagrindur lífsins anda
Golan af heiðinni köld og þrá
Niður jökul á milli sanda
Þrúgandi eilífðar þögn
Rífur í sig huga og vit
Fjarlæg fjöll, tennur Fenris
Ferð um auðn og firnindi
Fram undan for og dý
Hrjóstrugt landið er á ný
Skelfing yfirtekur tilveru alla
Hungur, sultardropar falla
Slóð tortímingar og dauða
Skuggar eilífðar standa vörð
Fúin bein grafin í svörð
Kyrrð yfir landinu auða
Gróður fauk út á mávang
Lækir og lögur þornuðu upp
Lífið að lokum hvarf
Ferð um auðn og firnindi
Í eyði lagðist allt land
Verustaður vindanna
Og anda fortíðar
Þrúgandi eilífðar þögn
Rífur í sig huga og vit
Fjarlæg fjöll, tennur Fenris
Ferð um auðn og firnindi
Fram undan for og dý
Hrjóstrugt landið er á ný
Beinagrindur lífsins anda
Golan af heiðinni köld og þrá
Niður jökul á milli sanda
Þrúgandi eilífðar þögn
Rífur í sig huga og vit
Fjarlæg fjöll, tennur Fenris
Ferð um auðn og firnindi
Fram undan for og dý
Hrjóstrugt landið er á ný
Skelfing yfirtekur tilveru alla
Hungur, sultardropar falla
Slóð tortímingar og dauða
Skuggar eilífðar standa vörð
Fúin bein grafin í svörð
Kyrrð yfir landinu auða
Gróður fauk út á mávang
Lækir og lögur þornuðu upp
Lífið að lokum hvarf
Ferð um auðn og firnindi
Í eyði lagðist allt land
Verustaður vindanna
Og anda fortíðar
Þrúgandi eilífðar þögn
Rífur í sig huga og vit
Fjarlæg fjöll, tennur Fenris
Ferð um auðn og firnindi
Fram undan for og dý
Hrjóstrugt landið er á ný
Writer(s): Vetur Lyrics powered by www.musixmatch.com

