Songtexte.com Drucklogo

Fjara Songtext
von Sólstafir

Fjara Songtext

Þetta er það lengsta sem ég fer
Aldrei aftur samur maður er
Ljóta leiðin heillar nú á ný
Daginn sem ég lífið aftur flý

Ef ég vinn í þetta eina sinn
Er það samt dauði minn
Trú mín er, að allt fari vel
Þessu er lokið hjá mér

Dag sem nótt, hljóðið var svo rótt
Þrotið þol, lamað bros
Áfram ríð, hjartað pumpar tárum
Dag sem nótt, ég geng nú einn

Grafin bein grotna í jörðunni
Eins og leyndarmálin þín
Sem þú hélst forðum burt frá mér
En blóðið þyngr′en þögnin er


Svikin orð, grjót í kjafti þér
Rista dýpra en nokkur sár
Brotin bönd aldrei verða söm
Lygar eins og nöðrubit

Þetta er það lengsta sem ég fer
Aldrei aftur samur maður er

Ef ég vinn í þetta eina sinn
Er það samt dauði minn
Trú mín er, að allt fari vel
Þessu er lokið hjá mér

Dag sem nótt, hjartað var órótt
Þrotið þol, lamað bros
Áfram ríð, hjartað pumpar tárum
Dag sem nótt, ég geng nú einn

Ef ég vinn í þetta eina sinn
Er það samt dauði minn
Trú mín er, að allt fari vel
Þessu er lokið hjá mér
Dag sem nótt, hjartað var órótt
Þrotið þol, lamað bros
Áfram ríð, hjartað pumpar tárum
Dag sem nótt, ég geng nú einn.

Songtext kommentieren

Log dich ein um einen Eintrag zu schreiben.
Schreibe den ersten Kommentar!

Fans

»Fjara« gefällt bisher niemandem.