Songtexte.com Drucklogo

Með jötnum Songtext
von Skálmöld

Með jötnum Songtext

Æsist jötunn, eðliskvöt
Oss frá glötun bjargar.
Rífur göt á feld og föt,
Flensar kjöt og sargar.

Skriðjöklar gnauða og skrafa í
Myrkrinu,
Skjálfti um höfðana fer.
Koma þau skríðandi úr kafi,
Kafloðin skímslin úr hafi.
Bryðjandi grjótið og bergið og
þúfurnar,
Brestur í öllu sem er.
Stætt er þá engum á ströndum.
Storknað er blóðið á höndum.

Ver oss vökull
Vatnajökull.
Dansar dátt mey.
Dyrhólaey.


Vaknar í látunum vinur úr
Dvala
Og veður í óvinaskaut.
Hann er með konu á herðum,
Hér vinnu boginn á sverðum.
Stafnum í jörðina stingur
Hann hamrammur,
Stökkva þá dýrin á braut,
Berserkur hvikar nú hvergi.

Skelfur jörð.
Skelfur þar jörðin er skellur
Skaftið á hraunlagðar hellur.
Stendur vörð.
Stendur hann vörð þegar
Steðjar að hætta.
Hann stendur með okkur og fellur.

Falla lauf.
Falla þá laufin að foldu.
Frjósa lík saman við moldu.
Birtan dauf.
Birtan er dauf þegar bardaga
Lýkur.
Þar bíða þau tvö sem að
þoldu.


Brotnar sjór.
Brotnar þá sjórinn á bergi,
Bátarnir þoldu víst hvergi.
Hverfur mór.
Hverfur af mórinn en
Hvítslegin björgin
Víst hvíla á eldgömlum mergi.

Kólnar blær. Kólnar svo blærinn og kreppir.
Kverkunum risinn ei sleppir.
Losna klær.
Losnar um klær þegar lífið
út fjarar
Og Loki þá óvininn hreppir.

Halda bönd.
Halda þau bönd er við
Hnýttum,
Heiðrum þær stundir er
Nýttum.
Jötnahönd.
Jötna- með hönd var þar
Járnstafur reistur,
í jarðvegi lenti hann grýttum.

Sofna börn.
Sofna loks börnin er sekkur
Sólin við fjarlægar brekkur.
Bæjartjörn.
Bæjarins tjörn tekur
Blásvartan skugga
Er bergrisinn úr henni
Drekkur.

Jötnahönd, járn- með vönd.
Jökull skelfur, freyðir strönd.
Jafnan halda engin bönd.
Jötnahönd, jötnahönd.

Jötnahönd, járn- með vönd.
Jörðin opnast, sökkva lönd.
Jakar íss við sjónarrönd.
Jötnahönd, jötnahönd.

Songtext kommentieren

Log dich ein um einen Eintrag zu schreiben.
Schreibe den ersten Kommentar!

Beliebte Songtexte
von Skálmöld

Quiz
In welcher Jury sitzt Dieter Bohlen?

Fans

»Með jötnum« gefällt bisher niemandem.