Songtexte.com Drucklogo

Gleipnir Songtext
von Skálmöld

Gleipnir Songtext

Undan Loka Fenrir fæddist
Fullur hroka víst var sagt.
Er var þoka þá hann fæddist
þungbært ok á heiminn lagt.

Nú var gaumur að því gefinn
Greri aumur hvolpur fljótt.
Tíminn naumur, enginn efinn
á hann tauminn þyrfti skjótt.

Fyrrstan Læðing fengu goðin
Fenri þræði komu á.
Úlfur skæður, ljótur, loðinn
Leikinn bræði sleit hann þá.

Þegar Drómi Fenri festi
Falskan dóm þá úlfur hlaut.
Því með klóm og þrumubresti
þennan fróma fjötur braut.


Kattarins dynur, konunnar skegg,
Kynngi mína yfir legg.
Bjarnarins sinar, bjargsins rætur
Bíðum nú í skjóli nætur.
Fuglsins hráki, fisksins andi
Fyrir dverg er hægur vandi.
Mánuð gekk um margar götur
Mér að launum varð sá fjötur.

Fjöturinn er fjötrum grennri
Fágæt, göldrótt dvergasmíð.
Í Lyngva áður lögðu Fenri
Laus hann veldur orrahríð.

Hef í mínum höndum Gleipni
Horfi mót glyrnum tveim.
Treysti á Óðin, Tý og Sleipni
Tak mig þar og aftur heim.

Sá fjötur er öðrum fjötrum grennri
Fágæt og göldrótt dvergasmíð.
Í Lyngva þeir áður lögðu Fenri
Laus hann nú veldur orrahríð.
Hef ég í minum höndum Gleipni
Horfi á móti glyrnum tveim.
Treysti á Óðin, Tý og Sleipni
Takið mig þar og aftur heim.

Songtext kommentieren

Log dich ein um einen Eintrag zu schreiben.
Schreibe den ersten Kommentar!

Beliebte Songtexte
von Skálmöld

Quiz
Welche Band singt das Lied „Das Beste“?

Fans

»Gleipnir« gefällt bisher niemandem.