Songtexte.com Drucklogo

Hjá Þér Songtext
von Sálin Hans Jóns Míns

Hjá Þér Songtext

Þegar kviknar á deginum
Og í lífinu ljós,
þegar myrkrið hörfar frá mér
þá er eitthvað sem hrífur mig
Líkt og útsprungin rós.
Þá vil ég vera hjá þér

Þegar geng ég í sólinni
Mitt um hábjartan dag,
Litafegurð blasir við mér,
þegar heimurinn heillar mig
Líkt og töfrandi lag
þá vil ég vera hjá þér.


Ég vil bæði lif′og vona,
ég vil brenna upp af ást,
ég vil lifa með þér svona,
ég vil gleðjast eða þjást.
Meðan leikur allt í lyndi
Líka þegar illa fer,
Meðan lífið heldur áfram
þá vil ég vera hjá þér.

Meðan skuggarnir stækka og
ýta húminu að,
Gamall máninn bærir á sér,
Vil ég eiga andartak
Inni á rólegum stað
þá vil ég vera hjá þér.

Ég vil bæði lif'og vona,
ég vil brenna upp af ást,
ég vil lifa með þér svona,
ég vil gleðjast eða þjást.
Meðan leikur allt í lyndi
Líka þegar illa fer,
Meðan lífið heldur áfram
þá vil ég vera hjá þér.

Ooh, meðan leikur allt í lyndi
Líka þegar illa fer,
Meðan lífið heldur áfram
þá vil ég vera hjá þér.


Þegar slokknar á deginum
Yfirþyrmandi nótt
Stormar fyrir stjarnanna her.
En það bítur mig ekkert á
Og ég sef vært og rótt
Ef þú vilt vera hjá mér.
Þá vil ég vera hjá þér.

Songtext kommentieren

Log dich ein um einen Eintrag zu schreiben.
Schreibe den ersten Kommentar!

Quiz
Wer singt das Lied „Haus am See“?

Fans

»Hjá Þér« gefällt bisher niemandem.