Songtexte.com Drucklogo

Búkolla Songtext
von Laddi

Búkolla Songtext

Karl og kerling í sínu koti
Kúrðu og áttu einn svein
Hann Hrein
Beljuhró geymd í fjósabroti
Búkolla og hún bjó ein
Svo einn daginn var horfin kusa
Og ekkert til hennar sést
Né frést
Þá var Hreinn sendur út að hnusa
Harður og til í flest

Deó (deó) deó (deó)
Baulaðu Búkolla ef þú heyrir
Deó (deó) deó (deó)
En ekkert heyrðist hann áfram lengra hélt


Þegar hann hafði gengið lengi
Með hælsæri komin var
Og mar
Aumar iljar og sára strengi
Og stóð varla í lappirnar
Ef hann fyndi ekki kusu í hvelli
Og kæmi óðara þeim
Strax heim
Fengi hann ráðningu og rassskelli
Og rekin burt frá þeim

Deó (deó) deó (deó)
Baulaðu Búkolla ef þú heyrir
Deó (deó) deó (deó)
Baulaðu strax ef þú heyrir bofs í mér

Þá er baulað úr háu bjargi
þar Búkolla er bundin við grjót
Með fót
Litlu innar á loðnu fargi
Liggur skessa ein ljót
Strákur kemst síðan út með belju
Og stikar í áttina heim
Beint heim
En skessan vaknar og sýpur hveljur
"Svei ég skal ná þeim tveim"

Hæ hó. Korr í ró
Ég skal ná ykkur skrattakollar
Hæ hó. Korr í ró
Það þýðir ekkert að sitja og drolla


Þegar skessan var alveg að ná þeim sagði strákur
"Hvað eigum við að gera"? Og þá sagði Búkolla
"Muu. Taktu hár úr hala mínum
Og leggðu það á jörðina
Verður það þá að svo stóru vatni að enginn
Kemst yfir nema fuglinn fljúgandi."
Gerði strákur þetta og var úr þetta líka ekki smá vatn
Nú varð skessan alveg æf, hljóp heim í helli
Og kom með stóra bolann hans pabba síns
Og hann drakk allt vatnið í einum sopa

Nú var skessan alveg að ná þeim aftur
Þá segir Búkolla
"Taktu hár úr hala mínum og leggðu það á jörðina
Verður það þá að svo stóru báli að enginn
Kemst yfir nema fuglinn fljúgandi."
Hlær þá skessan og lætur bolaótuktina pissa öllu vatninu
Sem hann drakk á bálið og slökkva í því

Þegar skessan var alveg að ná þeim
Einu sinni enn, segir Búkolla
"Taktu hár úr hala mínum og leggðu það á jörðina
Verður það þá að svo stóru fjalli að enginn
Kemst yfir nema fuglinn fljúgandi."
Stoppar þá strákur og segir
"Ég er nú búinn að fá mig fullsaddan
Af þessu kjaftæði í þér beljuskratti þarna
"Taktu hár úr hala mínum"... hvað? Ha?

Þetta hefur ekkert virkað hjá þér hingað til
Nú tek ég til minna ráða!"
Skipti engum togum að stráksi hreinsaði hárin
Af halanum á Búkollu og stráði þeim í kring um sig
Spruttu þá upp heilu fjallasalirnir
Síðan hefur ekkert spurst til þeirra

Deó (deó) deó (deó)
Deó (deó) deó (deó)
Deó (deó) deó (deó)
Deó (deó) deó (deó)

Songtext kommentieren

Log dich ein um einen Eintrag zu schreiben.
Schreibe den ersten Kommentar!

Beliebte Songtexte
von Laddi

Quiz
Welcher Song ist nicht von Britney Spears?

Fans

»Búkolla« gefällt bisher niemandem.