Songtexte.com Drucklogo

Jagúar Songtext
von Kvikindi

Jagúar Songtext

ó jagúar hvað ertu að spá
viltu ekki vera mér hjá
fara úr skónum og undir sæng

ó jagúar þú ert svo klár
og með svo frábært hár
svo líka sátt við sjálfa þig

ó jagúar hvernig ferðu að
um helgar alein af stað
þú ert svo sjálfsörugg

elskarðu bara allt sem hreyfist
gerirðu bara allt sem leyfist
er í lagi að ég kalli þig vin
segðu mér svo aðeins frá þér
ertu kannski alveg frá þér
ég er það að minnsta kosti

ó jagúar hvað ertu að spá
viltu ekki vera mér hjá
og setjast á sófann minn


elskarðu bara allt sem hreyfist
gerirðu bara allt sem leyfist
er í lagi að ég kalli þig vin
segðu mér svo aðeins frá þér
ertu kannski alveg frá þér
ég er það að minnsta kosti
segðu mér allt sem þú vilt heyra
segðu mér allt sem þú vilt gera
segðu mér allt sem að þig langar til
hvar stendurðu í pólitík og
viltu líka verða rík og
viltu líka bjarga heiminum

ó jagúar hvað ertu að spá
viltu ekki vera mér hjá
og setjast á sófann minn

ó jagúar hvert settirðu hann
fórst heim með þeim sem ég ann
hann svarar ekki síðan þá

ó jagúar hvað ertu að spá
ég veit alveg hvað gengur á
fórstu úr hárum á sófann minn

Songtext kommentieren

Log dich ein um einen Eintrag zu schreiben.
Schreibe den ersten Kommentar!

Quiz
Cro nimmt es meistens ...?

Fans

»Jagúar« gefällt bisher niemandem.