X Songtext
von Hatari
X Songtext
X! Ljóðið er dautt listform og vitið uppurið.
Orðið er jarðsungið við stynjan hórkarla, mógúla og svikahrappa.
Það kostar milljarð að fá krabbamein og líftóruna að losna við það.
Þú horfðir á mig deyja.
Þornaðir ávextir glataðra væntinga halda skrílnum í algleymingi.
Gjaldþrot hins andlega mergsýgur framtakið og kæfir það í biturleika.
Saltinu úr grautnum er stráð í sárið og ég veslast upp og skrælna.
Þú horfðir á mig deyja.
Óþrjótandi gengisfallið ámáttkast í
óbilandi meðalmennsku meðalmannapans.
Lygarnar eru sem hnífur í blæðandi síðu aumingjans.
Hann krýpur á hnjánum. Holskeflan er gröf.

Dreyri vellur – hann fellur í valinn.

Writer(s): Missy Elliott, Marcus Vest, Jeffrey Atkins, Irving Lorenzo Lyrics powered by www.musixmatch.com