Songtexte.com Drucklogo

Leyndarmál frægðarinnar Songtext
von Das Kapital

Leyndarmál frægðarinnar Songtext

Klukkan var fjögur að morgni
Við höfum elskast alla nóttina.
Bílar fara í gang út á horni
Sólin skein á brúna öxlina.

Og þú spurðir mig um leyndarmál frægðarinnar
Sem er að stórum hluta einsemdin
Og stundum fallegt bros
Og stundum fallegt bros.

Hár þitt eins og gyltur stormur
Flæddi niður herðar og bak.
Þú hreyfðir þig eins og latur köttur
Sem hefur fengið á bráð sinni tak.


Og þú spurðir mig um leyndarmál frægðarinnar
Sem er að stórum hluta einsemdin
Og stundum fallegt bros
Og stundum fallegt bros.

Margir hafa elskast á undan
Við tvö, við vorum aðeins of sein
Til þess að við fengjum boð um inngang
Svo við byggðum okkur afmarkaðan heim.

Og þú spurðir mig um leyndarmál frægðarinnar
Sem er að stórum hluta einsemdin
Og stundum fallegt bros
Og stundum fallegt bros.

Í einangrun frá umhverfi eða tíma
Við drukkum kampavín í París.
Þú gafst mér númer hringdu ef þú hefur síma
Annars hittumst við um jólin í París.


Og þeir spurðir mig um leyndarmál frægðarinnar
Sem er að stórum hluta einsemdin
Og stundum falskt bros
Og stundum mitt fallega bros.

Songtext kommentieren

Log dich ein um einen Eintrag zu schreiben.
Schreibe den ersten Kommentar!

Beliebte Songtexte
von Das Kapital

Fans

»Leyndarmál frægðarinnar« gefällt bisher niemandem.