Songtexte.com Drucklogo

Vals fyrir Brynju Songtext
von Bubbi Morthens

Vals fyrir Brynju Songtext

Hálfnakin trén tapað hafa áttum
Trúlega eiga þau bágt
Í vindinum skilja að skjólið verði lítið
Þegar skellur á norðanátt

Þegar tjörnin frýs og frost bítur kinnar
Og fjöllin klæðast hvítum feld
Þá fá skautar sem héngu í kolsvartri kompu
Að kyssa ísinn i kveld

Og ég bíð við Iðnó undir ljósunum gulu
Úti á svellinu fólkið ég sé
Í kvöld við skulum skauta út á ísinn
Og skera í hann B plús B


Láttu vindinn blítt um vangana strjúka
En varlega skaltu renna þér
Það er vök vid brúna, blásvört á að líta
Það brosir enginn sem oní fer

Og endurnar horfa á heiminn kímnar
Hlæja dátt og vagga sér
Þeim er sama um ráðhús og rennandi búka
Þær rýna eftir brauðinu hér

Og ég bíð við Iðnó undir ljósunum gulu
Úti á svellinu fólkið ég sé
Í kvöld við skulum skauta út á ísinn
Og skera í hann B plús B

Og ég bíð við Iðnó undir ljósunum gulu
Úti á svellinu fólkið ég sé
Í kvöld við skulum skauta út á ísinn
Og skera í hann B plús B


Og ég bíð við Iðnó undir ljósunum gulu
Úti á svellinu fólkið ég sé
Í kvöld við skulum skauta út á ísinn
Og skera í hann B plús B

Songtext kommentieren

Log dich ein um einen Eintrag zu schreiben.
Schreibe den ersten Kommentar!

Quiz
Whitney Houston sang „I Will Always Love ...“?

Fans

»Vals fyrir Brynju« gefällt bisher niemandem.