Songtexte.com Drucklogo

Foxtrot Songtext
von Bubbi Morthens

Foxtrot Songtext

Bak við augun eru myndir og ég minnist einatt þín
Í máðum tarotspilum.
Þar sem skugginn snertir ljósið þar liggur æska mín
Í löngum og dökkum skilum.

Ég er bara ég, bíðandi eins og er
Brosandi meðan þú sefur.
Einn daginn, ég vona, vaknar þú í mér
Þá veit ég hvað þögnin hefur.

Í skautinu þínu mjúka eru draumar sem draga mig
Dauður þar á ég heima.
Kossar varir rífa og rósir blóðga þig
Raddir burt mig teyma.


Ég er bara ég, bíðandi eins og er
Brosandi meðan þú sefur.
Einn daginn, ég vona, vaknar þú í mér
Þá veit ég hvað þögnin hefur.

Bak við bænir þínar herrann á himnum bíður þín
Með hjartafylli af syndum.
Spor okkar ég leita í gleri gluggans rósin mín
Ef gæfuna þar við fyndum.

Bak við þykka nóttina býr næturstjarnan mín
Njörvaður ég þrái kulsins svala.
Ég ríf mér gat á húmið og ég hvísla inn til þín
Haustið er lagst í dvala.

Ég er bara ég, bíðandi eins og er
Brosandi meðan þú sefur.
Einn daginn, ég vona, vaknar þú í mér
Þá veit ég hvað þögnin hefur.

Songtext kommentieren

Log dich ein um einen Eintrag zu schreiben.
Schreibe den ersten Kommentar!

Fans

»Foxtrot« gefällt bisher niemandem.