Afleiðingar Songtext
von Ateria
Afleiðingar Songtext
Ég þoli ekki
afleiðingar þess sem ég hef gert.
Það sem kemur af doða
og nennuleysi.
Þú leiðir grát hjá þér,
ég á hann skilið.
Það veist þú,
það heldur þú,
það heldur þú.
Ég er þreytt
á þessu fjandans skilningsleysi.
Og ég hef reynt og reynt og reynt
en alltaf mistekst mér.
Mælirinn er mölvaður,
barmafullur og yfir það.
Þú grýttir honum burt,
þú grýttir honum burt.
Þindin herpist saman
stjórnlaust og mig svimar.
Ekkasog afhjúpa mig, eftirtakanleg,
en mér er sama.
Eigðu ekkasogin sem þú bjost þér,
en tárin mín á ég,
en tárin mín á ég.
afleiðingar þess sem ég hef gert.
Það sem kemur af doða
og nennuleysi.
Þú leiðir grát hjá þér,
ég á hann skilið.
Það veist þú,
það heldur þú,
það heldur þú.
Ég er þreytt
á þessu fjandans skilningsleysi.
Og ég hef reynt og reynt og reynt
en alltaf mistekst mér.
Mælirinn er mölvaður,
barmafullur og yfir það.
Þú grýttir honum burt,
þú grýttir honum burt.
Þindin herpist saman
stjórnlaust og mig svimar.
Ekkasog afhjúpa mig, eftirtakanleg,
en mér er sama.
Eigðu ekkasogin sem þú bjost þér,
en tárin mín á ég,
en tárin mín á ég.
Writer(s): ása önnu ólafsdóttir, Eir önnu ólafs, Fönn Fannarsdóttir Lyrics powered by www.musixmatch.com

