Songtexte.com Drucklogo

Báran Songtext
von Andervel

Báran Songtext

Ég sit og horfi á sjóinn
Það er nótt, og sólin hvílist vært
Hann vaggar henni vinarblítt og rótt
Hún vefur hann mjúkum armi

Ég heyri hvísl í undurblíðum blæ
Er breiðum söndum kossa gefur
Og strýkur mjúkri hendi hafið blátt
En mig í fjallalofti vefur


Og hljóður lít ég hafið dimmt og vítt
Ég heyri til þín sjávarbára
Þú rís og hneigir síðan hægt og blítt
Þitt höfuð vott í skautið bláa
Ég heyri til þín sjávarbára

Þú leggur þína litlu votu hönd
Á sandinn rétt við fætur mína
Þú hjalar, er þú hnígur rótt að strönd
Mig hrífa raddir þínar

Ég held ég skilji hulduljóðið þitt
Þú ert alltaf aldan á sænum
En það er eigi aðallífsstarf þitt
Að óma í hæga blænum
Þú ert alltaf aldan á sænum

Songtext kommentieren

Log dich ein um einen Eintrag zu schreiben.
Schreibe den ersten Kommentar!

Quiz
Wer ist gemeint mit „The King of Pop“?

Fans

»Báran« gefällt bisher niemandem.