Songtexte.com Drucklogo

Narfi Songtext
von Skálmöld

Narfi Songtext

Narfi ég hitti er nóttin var liðin,
Niflheimahliðin.
Kom hann í hnakki á kolsvörtum fola,
Kólnaði gola.
Starði á okkur með stingandi augum,
Staðurinn umkringdur vofum og draugum.
Þrek hans var búið og hugrekkið brostið,
Beit okkur frostið.

Loki vill buga legg þinn og hug,
Lítið því duga vopn og vörn.
Hlusti nú hver sem heyrir í mér:
Hættuleg eru Loka börn.


Hann þekkir staðinn sem hrímar og frystir,
Hel er hans systir.
Sagði að núna hann vildi mig vara
Við því að fara
Niður til hennar sem Niflheimi stjórnar,
Neyðir og pyntar og sveltir og fórnar.
Bráðum ég myndi svo bágindum mæta,
Brynhildi græta.

Lævís og slyng þau læðast í hring,
Lokka þig kringum Bæjartjörn.
Hlusti nú hver sem heyrir í mér:
Hættuleg eru Loka börn.

Vilja úr leyni vinna þér mein,
Villidýr reynast hefnigjörn.
Hlusti nú hver sem heyrir í mér:
Hættuleg eru Loka börn.

Þig vilja hryggja, þau eru stygg.
þagna mun Frigg og fölna Hörn.
Hlusti nú hver sem heyrir í mér:
HÆttuleg eru Loka börn.

Loki vill buga legg þinn og hug,
Lítið duga því vopn og vörn.
Hlusti nú hver sem heyrir í mér:
Hættuleg eru Loka börn.

Songtext kommentieren

Log dich ein um einen Eintrag zu schreiben.
Schreibe den ersten Kommentar!

Beliebte Songtexte
von Skálmöld

Fans

»Narfi« gefällt bisher niemandem.